Tuesday, January 8, 2013

Ferðin langa

Þá er fyrsti sólarhringurinn í Buenos aires liðinn og ekki seinna vænna en að koma síðustu dögum á "prent". Nú gæti einhver spurt sig: "Já en hvernig má það vera að maðurinn geti bara bloggað í útlandinu, og það um miðja nótt?!". Það er nú saga að segja frá því sem hófst á þvi að ég ætlaði að kaupa mér Kindle lesbretti í fríhöfninni. Þau voru reyndar ekki til en mikið úrval af lófatölvum. Eitt leiddi af öðru og eftir raðleggingar Ketils tölvugúrú  lét ég slag standa og splæsti i eitt stykki Google nexus 7. Töff græja sem virkar vel og er mjög gagnleg í flest annað en að lesa bækur. Svo er wifi í íbúðinni svo þetta small allt saman, nú þarf ég ekkert að fara út úr húsi til að sjá suður ameríku, ég gúgla þessu bara!

En að ferðasögunni. Flugin 4 tóku furðufljótt af. Ketill skemmti okkur á fyrsta leggnum, svo sváfum við á þeim næsta. Seinustu tveir voru stuttir (miðað við hina) og áður en við vissum af vorum við lent í Buenos Aires.
Landlordinn okkar, hún Cecilia, tók á móti okkur í íbúðinni sem verður vistarverur okkar næstu dagana. Stórfín íbúd i gömlu hverfi, allt til alls og stutt í flest. Eftir að hafa skola ferðarykið röltum við niður á næsta grillhús (parrilla) og fengum okkur eitthvað sem við héldum að væri steik. Spænskan sveik okkur við fyrsta tækifæri, ég endaði með grísaskanka í tómatsósu en Hrönn fékk soðinn kjöthleif. Namm!

Dagurinn í dag hófst á skipulagsmálum, við fundum ferðaskrifstofu sem gat bókað fyrir okkur næsta legg ferðarinnar sem verður flug til El Calafate í Patagoniu. Pínu dýrt en skárra en 48 tímar í rútu. Við skráðum okkur líka í hjólaferð um bæinn á morgun. Það sem eftir leið dagsins notuðum við í að rölta um Plaza de Mayo og nærliggjandi götur. Borgin er virkilega falleg þó svo að sorphirðingamenn virðist vera í verkfalli. Einn af hápunktum dagsins var tango sýning sem við römbuðum á niðri í bæ. Ég hef meðfædda fordóma gegn öllum dansi en þetta var verulega kúl. Og ekki voru dansararnir neinar herfur, mamma mia! Ég held hreinlega að við verðum að splæsa á okkur tangó sjóvi.
Minnug fiaskósins í gærkvöldi ákváðum við að elda heima í kvöld. Dagurinn verður tekinn snemma á morgun enda ætlum við okkur stóra hluti.

Bless í bili

Skarphéðinn og Hrönn

4 comments:

  1. Frábært :) Hér er kuldi og myrkur en allir hressir.

    ReplyDelete
  2. Þetta er ekki spænskan að svíkja ykkur. Argentínar vita bara ekkert hvernig matur virkar. Gott að þið hafið strax hlotið eldskírn í þessum málum svo vonbrigðin verði jafnalger daglega.

    Njótið nú annars dvalarinnar í BA. Hasta luego!

    ReplyDelete
  3. Frábært, gaman að fylgjast með ykkur! Fylgja ekki óvæntar uppákomur í tengslum við mat svona ævintýraferðum bara? Öfunda ykkur alla leið til Argentínu ;)

    ReplyDelete