Friday, January 11, 2013

Buenos Aires; The good , The bad & The Ugly

Fimmti dagurinn í Buenos Aires er ad lokum kominn og timi til ad skrasetja helstu afrek sidustu daga, sem hafa verid töluverd.

Til stód af hafa massífan túristadag í fyrradag, aetludum ad vakna mjög snemma, fara fyrst í túristarútu og sídan í hjólaferd sem vid höfdum bókad daginn ádur. Aetludum ad taka rútuna á Plaza de Eva Peron sem er skammt frá íbúdinni okkar en rétt misstum af henni. Naesta rúta sem kom korteri seinna var full thannig ad vid ákvádum ad gefa skít í túristarútuna og fá okkur labbitúr um Puerto Madero ad Plaza San Martin, hvar hjólaferdin átti ad byrja thremur tímum seinna.
Puerto Madero er gamla höfnin í Buenos Aires sem tekin var í notkun skömm fyrir aldamótin 1900. Thrátt fyrir ad vera glaesileg framkvaemd á sínum tíma sprengdi hin órt vaxandi höfudborg öfnina fljótlega af sér thannig ad blómaskeid hennar entist ekki mikid meira en áratug og í kringum 1930 var höfnin yfirgefin med manni og mús. Naestu 50 árin var Puerto Madero í fullkominni nidurnídslu, afdrep glaepamanna og hústökufólks. Snemma á 9. áratugnum var ákvedid ad taka svaedid í gegn á ný og reisa til fyrri virdingar, nú sem íbúdarsvaedi og veitingarekstur. Skemmst er frá thví ad segja ad svaedid er gullfallegt í dag og handan gömlu hafnarinn rís nú yngsta hverfi borgarinn, smekkfullt af nýtísku skýjakljúfum.
Vid röltum thar um í rólegheitum, litum um bord í fyrsta skólaskip Argentínska flotans sem nú hefur verid gert ad fljótandi safni í Puerto Madero. Skip thetta, Sarmiento, sigldi á sínum tíma 40 sinnum ummhverfis jördina til thess as sýna umheiminum hversu heilbrigdir og staeltir menn byggdu Argentínu.



Vid vorum maett á Plaza San Martin í taeka tíd fyrir hjólatúrinn. Hópurinn sem vid áttum ad eyda naestu 4 tímum med samanstód af gaedinum okkar henni Barböru, maedginum frá Washington DC, hlédraegum náunga frá London og sérstaklega kynlegum kvisti sem reyndist vera frá Oslo. Vid höfdum tekid eftir honum skömmu ádur í hressilegum Müllers aefingum. Hann var milli sextugs og sjötugs, í snjádum hlaupaskóm, blárósóttum stuttbuxum og bol med mynd af sportbíl undir fyrirsögninni "Fully charged". Gylltur eyrnalokkur prýddi vinstra eyrad. Hann átti eftir ad reyna mikid á tolrifin á okkur, sérstaklega Hrönn.
Barbara reyndist fjölfród og röggsöm og thó ad reidskjótarnir vaeru ekki endilega upp á marga fiska teymdi hún okkur um straeti og torg í brjáladri umferd med haefilega blöndu af hrada og kaeruleysi ad vopni.
Ferdin hófst á stuttri kynningu á San Martin, hershöfdingjanum sem fyrstur skipulagdi her í Argentínu og reyndar vídar í S-Ameríku og átti thar med stóran thátt í thví frelsi theirra undan oki Spánarkonungs.
Naesta stopp var vid minnismerkid um Falklandseyastrídid, sem er Argentínumenn kalla aldrei annad en Malvinas, er mönnum greinilega enn mjög hugleikid. Núverandi forseti landsins, Christína e-d, mun reyndar vera sá fyrsti til ad reyna ad gera upp vid stjórnartíd herforingjastjórnarinn frá 1976-1983, sem kostadi ca 30000 manns lífid, auk strídsins vid Breta. Ole Normann lét spurningaflódid dynja á Barböru og tókst alltaf ad misskilja svörin, eda thóttist sjálfur vita betur. Hann spurdi hvort Pinochet (fvd. einraedisherra Chile) hefdi stjórnad árásinni á Falklandseyjar og hvort Buenos Aires vaeri nú fard í stríd vid Falklandseyjar.
Frá Plaza San Martin var haldid um Puerto Madero nidur í sérstakt, 300 hektara "náttúruverndarsvaedi". Svaedi thetta er alls óbyggt, grasi og skógi vaxid á bökkum Rio de la Plata. Thad mun í raun vera landfylling sem til stód ad nota sem byggingarland í kringum 1940. Eftir ad búid var ad thurrka svaedid upp var fallid frá hugmyndinni og á naestu árum og áratugum endurheimti naettúran svaedid, sem nú er semsagt ordid ad Útivistarsvaedi.
Frá náttúrugardinum var haldid til hverfisins La Boca, thadan sem tvennt thad merkilegasta sem Buenos Aires hefur alid af sér kemur; Tangó og Maradona. Hverfid var upphaflega heimili hafnarverkamanna sem fluttu til borgarinnar frá Ítalíu og ber thess enn merki ad vera frekar í fátaekari kanntinum. Vid stoppudum vid túristagötuna Caminito thar sem ekki var thverfótad fyrir Tangó dönsurum, og sídan vid heimavöll knattspyrnuveldisins Boca Juniors, La Bonbonera eda Konfektkassinn. Hverfid allt er reyndar undirlagt af bláum og gulum lit og slagordum til heidurs Boca Juniors.
Tvaer athyglisverdar stadreyndir um Boca Juniors: Coca Cola merkin á stúkunni eru svört og hvít en ekki raud og hvít eins og venjan er. Thad mun vera vegna thess ad einkennislitir erkifjenda Boca Juniors, Riverplate, eru raudur og hvítur og thad má ad sjálfsögdi ekki sjást á Konfektkassanum. Eins og fyrr sagdi eru litir Boca Juniors gulur og blár. Sagan segir ad í upphafi hafi búningur theirra verid svartur og hvítur en theim var gert ad breyta um lit thar sem their voru of líkir ödru lidi. Litavalid skyldi nú lagt í hendur hafnarinnar sem La Boca byggdi allt sitt á, Boca Juniors myndi taka upp liti thess fána sem naesta skip baeri. Thad skip reyndist sigla undir saenskum fána, thess vegna eru litir lidsins gulur og blár.
Frá La Boca héldum vid til San Telmo, sem er ásamt La Boca elsta núvarandi hverfi borgarinnar. San Telmo var hverfi fína og ríka fólksins framan af, húsin stór og glaesileg, landareignir vídfedmar. Thad breyttist allt í miklum gulufaraldri árid 1871 sem thurrkadi út stóran hluta borgarinnar. Their sem gátu flúdu borgina, margir af theim ríku sem ádur byggdi San Telmo. Eftir faraldurinn lögdu innflytjendur vídsvegar af úr Evrópu glaesihýsin og landareignirnar undir sig. Enn í dag er hverfid mikill sudupottur menningar og lista.
Ferdinni lauk á Plaza de Mayo, Austurvelli theirra porteña, en svo nefnast íbúar Buenos Aires. Thar hafa allar uppreisnir, mótmaeli eda byltingar landsins átt upphaf sitt, hvort sem er sjálfstaedisyfirlýsingin frá Spáni eda mótmaeli gegn núverandi stjórnvöldum í gaer. Barbara fraeddi okkur um sögu torgsins, medal annars um thögul mótmaeli "Maedra og Amma Plaza de Mayo", kvenna sem áttu börn eda barnabörn sem hurfu í stjórnartíd herforingjanna stód yfir. Fjölmörg börn hurfu ásamt foreldrum sínum, eda faeddust maedrum sem voru í haldi og ekkert spurdist til. Suma hafa komid í leitirnar áratugum sídar en margra er enn saknad. Ole Normann fannst hann sprenghlaegilegur thegar hann spurdi Barböru hvort hún gaeti ekki bara verid aettleidd, eitt af týndu börnunum. Hún svaradi kurteislega: "Nei, ég lít út alveg eins og pabbi minn".

Eftir thennan frábaera túr gengum vid heim til San Telmo med stoppi í Bruchetta con Lomo og bjór.

Daginn eftir ákvádum vid ad gera adra tilraun vid túristastraetóinn, enda fer hann um mun staerra svaedi en vid hjóludum um í gaer. Thar er líka hop-on-hop-off fyrirkomulag thannig ad madur getur tekid sér pásu, rölt um og hoppad um bord í naesta vagn. Straetóinn er á tveimur haedum, loftkaeld nedri haed og opin efri haed. Heyrnatól fylgdu hverju saeti en ógerningur reyndist ad heyra maelt mál í theim. Vid sáttum í brennandi sólinni á medan rútan siladist um La Boca, eins túristaleg og hugsast gat. Daginn ádur thegar vid hjóludum í gegn komu krakkar út á götu sem rödudu sér upp fyrir high-five thegar vid fórum framhjá. Nú gáfu rónar okkur fokkmerki. Eftir einn og hálfan tíma í rútunni ákvádum vid ad hoppa úr í Belgrano hverfinu og rölta milli naestu stoppistödvar í gegnum gard einn mikinn. Talsvert var um fólk á hjólum eda ad skokka í gardinum thannig ad vid töldum thad nokkud tryggt. Um gardinn fer einnig gata med talsverdri traffík. Eftir um hálftíma göngu, medal annars framhjá andapolli hvar fólk sóladi sig á bökkunum komum vid ad stórum gatnamótum sem göngubrú thveradi. Ég var ber ad ofan med myndavél í litlu hulstri um öxlina og bakpoka á bakinu, Hrönn í kjól, sandölum med litla tösku um öxlina. Thegar vid vorum komin hálfa leid yfir brúna sáum vid thrjá stráka koma hlaupandi á móti okkur, tveir heldur rýrir og renglulegir en einn talsvert haerri og thybbnari. Thegar their maettu okkur vatt annar af rýringunum ad mér og ég áttadi mig strax á thvi ad hann vildi e-d sem vid vorum med. Hann greip í myndavélarólina og reyndi ad rífa hana af mér en af ósjálfrádum vidbrögdum streittist ég á móti, enda var hann svosem ekki mikill vexti. Allt sem ég hef lesid segir ad ef á mann er rádist med thessum haetti eigi madur ad láta frá sér thad sem their vilja og drulla sér svo burt. Thad eina sem ég heyrdi var Hrönn hrópa: " Ekki láta þá ná vélinni!" Ég hélt thví daudahaldi í vélina, hálfpartinn gegn betri vitund. Á medan ég togadist á vid tittinn rauk Hrönn á hann og ýtti honum í burtu, vid thad slitndadi ólin af vélinni öðrum megin. Hinn rýringurinn rédist thá á Hrönn og reyndi ad ná af henni töskunni en lurkurinn snéri sér ad mér og togadist á vid mig um vélina. Sem betur fer hélt ég á vélinni en hann í ólina, sem gaf sig fljótlega. Thessir drengir voru greinilega fullkomnir vidvaningar á glaepabrautinni, álíka hraeddir og vid og voru fljótir ad leggja á flótta thegar vid bitum á móti. Eftir ad lurkurinn lagdi á flótta hljóp ég yfir til Hrannar sem var í mikilli baráttu vid rindilinn um töskuna sína og hvítan plastpoka. Pokinn slitnadi í sundur, gaurinn hélt pokanum, Hrönn töskunni og öll hlupum vid í sitt hvora áttina. Thegar vid Hrönn komum nidur af brúnni góludum vid á naesta leigubíl og drifum okkur heim. Thad eina sem vantadi voru sólgleraugun hennar Hrannar. Pokinn sem hún hafdi slegist um vid tittinn virdist hafa verid theirra eigin, mátti engu muna ad their hefdu endad fátaekari eftir vidskiptin vid hana. Thrátt fyrir ad hafa sloppid frá thessari reynslu einungis med skrámur og marbletti var okkur nokkud brugdid. Vid gengum samt nidur á Plaza de Mayo seinnipartinn, keyptum ný gleraugu handa Hrönn og tengingu til ad koma myndum á Nexusinn.

Thad er ekki laust vid ad vid séum mun varari um okkur í dag en undanfarna daga. Thó ad madur hafi vitad ad smáglaepir séu algengir sumsstadar í Buenos Aires töldum vid okkur fara ad öllu med gát. Madur horfir líka á fólkid í kringum sig med ödrum augum núna og satt best ad segja leid okkur ekkert allt og vel í Subte-inu (nedanjardarlestinni) í dag, eda á Plaza de Italia.
En hvad um thad, sked er sked, á morgun kvedjum vid Buenos Aires og fljúgum sudur á bóginn. Í kvöld höfum vid splaest á okkur Tangó sýningu, thad verdur vonandi til thess ad leidrétta ánaegjuvoginna adeins.

Kaerar kvedjur til allra heima

Skabbi


1 comment:

  1. Úff! Þið eruð nú meiri töffararnir! Ekki mundi ég vilja mæta Hrönn í dimmu húsasundi ;) Í guðanna bænum fariði varlega! -Berta

    ReplyDelete