Eftir margra mánaða spekúleringar og draumóra er biðin langa loksins á enda. Ég vildi að ég gæti sagt að við hefðum nýtt tíman vel í að skipuleggja ferðina í hörgul, læra spænsku og setja upp fastmótað ferðaplan en svona er þetta bara, við æðum mállaus út í óvissuna og látum okkur reka á reiðanum. Hitt er annað mál að við höfum ekki minnstu áhyggjur af ferðalaginu, enda erum við fædd undir heillastjörnu og lítum svo á að hlutirnir muni alltaf fara á besta veg, með einum hætti eða öðrum.
Áætlun næstu sólarhringa hjómar í grófum dráttum svona: Við fljúgum frá Keflavík til New York á morgun klukkan 17:00. Á JFK hoppum við um borð í vél sem flytur okkur til Buenos Aires með millilendingu í Lima og Santiago. Í Buenos Aires erum við búin að fastna okkur íbúð fyrstu dagana þannig að við ættum að hafa tíma til að skoða okkur um og leggja drög að næsta áfanga. Farangurinn er kominn niður í bakpokana, mestu verðmætunum hefur verið komið undan í öruggt skjól handfarangursins, restin fær að kúldrast í kulda og trekk á milli landa, margþukklað og þreifað af hlaðmönnum þriggja heimsálfa.
Hjá okkur er í rauninni ekkert eftir annað en að strjúka af gólfinu og fólkinu, hvíla sig vel og storma svo á vit ævintýranna sem bíða okkar í heitari löndum.
Adios amigos
S & H
No comments:
Post a Comment