Þá er fyrsti sólarhringurinn í Buenos aires liðinn og ekki seinna vænna en að koma síðustu dögum á "prent". Nú gæti einhver spurt sig: "Já en hvernig má það vera að maðurinn geti bara bloggað í útlandinu, og það um miðja nótt?!". Það er nú saga að segja frá því sem hófst á þvi að ég ætlaði að kaupa mér Kindle lesbretti í fríhöfninni. Þau voru reyndar ekki til en mikið úrval af lófatölvum. Eitt leiddi af öðru og eftir raðleggingar Ketils tölvugúrú lét ég slag standa og splæsti i eitt stykki Google nexus 7. Töff græja sem virkar vel og er mjög gagnleg í flest annað en að lesa bækur. Svo er wifi í íbúðinni svo þetta small allt saman, nú þarf ég ekkert að fara út úr húsi til að sjá suður ameríku, ég gúgla þessu bara!
En að ferðasögunni. Flugin 4 tóku furðufljótt af. Ketill skemmti okkur á fyrsta leggnum, svo sváfum við á þeim næsta. Seinustu tveir voru stuttir (miðað við hina) og áður en við vissum af vorum við lent í Buenos Aires.
Landlordinn okkar, hún Cecilia, tók á móti okkur í íbúðinni sem verður vistarverur okkar næstu dagana. Stórfín íbúd i gömlu hverfi, allt til alls og stutt í flest. Eftir að hafa skola ferðarykið röltum við niður á næsta grillhús (parrilla) og fengum okkur eitthvað sem við héldum að væri steik. Spænskan sveik okkur við fyrsta tækifæri, ég endaði með grísaskanka í tómatsósu en Hrönn fékk soðinn kjöthleif. Namm!
Dagurinn í dag hófst á skipulagsmálum, við fundum ferðaskrifstofu sem gat bókað fyrir okkur næsta legg ferðarinnar sem verður flug til El Calafate í Patagoniu. Pínu dýrt en skárra en 48 tímar í rútu. Við skráðum okkur líka í hjólaferð um bæinn á morgun. Það sem eftir leið dagsins notuðum við í að rölta um Plaza de Mayo og nærliggjandi götur. Borgin er virkilega falleg þó svo að sorphirðingamenn virðist vera í verkfalli. Einn af hápunktum dagsins var tango sýning sem við römbuðum á niðri í bæ. Ég hef meðfædda fordóma gegn öllum dansi en þetta var verulega kúl. Og ekki voru dansararnir neinar herfur, mamma mia! Ég held hreinlega að við verðum að splæsa á okkur tangó sjóvi.
Minnug fiaskósins í gærkvöldi ákváðum við að elda heima í kvöld. Dagurinn verður tekinn snemma á morgun enda ætlum við okkur stóra hluti.
Bless í bili
Skarphéðinn og Hrönn
Frábært :) Hér er kuldi og myrkur en allir hressir.
ReplyDeleteÞetta er ekki spænskan að svíkja ykkur. Argentínar vita bara ekkert hvernig matur virkar. Gott að þið hafið strax hlotið eldskírn í þessum málum svo vonbrigðin verði jafnalger daglega.
ReplyDeleteNjótið nú annars dvalarinnar í BA. Hasta luego!
Gaman að þessu
ReplyDeleteFrábært, gaman að fylgjast með ykkur! Fylgja ekki óvæntar uppákomur í tengslum við mat svona ævintýraferðum bara? Öfunda ykkur alla leið til Argentínu ;)
ReplyDelete